Monday, November 12, 2012

Hefðbundin grafík

Ég fór á sýningu í dag hér í næsta þorpi hjá myndlistakonunni Christine Ebersbach sem sýnir tréristur, málverk og vatnslitamyndir. Ég verð að segja að tréristur hennar hrifu mig langmest af þeim verkum sem þarna voru sýnd. Einhver kraftur í þeim og einföld myndsýn sem er hrífandi. Sýnishorn af verkum Christine Ebersbach . Myndlistarkonan ferðast víða, einkum um norðurslóðir og hefur m.a. farið til Íslands og Noregs að leita myndefnis. Myndir hennar þaðan frá sl. árum(2010)eru ótrúlega fallega unnar og sterkar, tréristur á þunnan japanpappír. Sem fékk mig til að hugsa hvað það er við grafíkina(ef fólk á annað borð hefur hana i hendi sér)sem er svo heillandi og afhverju myndlistarmenn, menntaðir í grafík leita oft á önnur mið meðfram og hætta jafnvel alveg. Sjálf er ég ein þeirra, en frá námi(1992) hef ég einkum málað þó ég sæki alltaf í grafíkina inn á milli. 
- Kannski er það þessi "tileinkun", að maður sé ekki nógu merkilegur afþví maður vinnur "bara"í grafík og að það að vera að mála sé í einhverjum skilningi merkilegra. 
- Kannski líka það að þetta er puð og þrælerfitt, að skera út, bera litinn á, rífa pappír, þrykkja(snúa pressunni) og stundum margar plötur sem flækja málin. 
- Kannski er þetta ákveðin vanþekking hjá markaðnum(listnjótendum) sem þekkir ekki góða grafík.En auðvitað skiptir þetta í sjálfu sér engu, myndlist er myndlist og það verður alltaf til allskonar list. En ég vildi samt að það myndu einhverjir af þeim sem eru svo fjári góðir í faginu myndu halda sig við  að gera góða grafík. Því æfingin skapar meistarann og það má ekki tapa þolinmæðinni. Ný efni og aðferðir eru að þróast og það skiptir máli að þeir sem hafa tæknina svo vel á valdi sínu, sýni okkur í hinum(í bókstaflegri merkingu) hvernig á að gera hlutina.

Hátíð í bæ

Nú er líka hátíð í bæ í Reykjavík því á næstu vikum(jafnvel fram á næsta ár) má sjá frábærar sýningar á höfuðborgarsvæðinu sem vert er að skoða. Listasafn Reykjavíkur fagnar 80 ára afmæli Errós með því að leggja sali sína undir grafíkverk hans frá ýmsum tímum. Á Kjarvalsstöðum verður yfirlitssýning á verkum  Ragnheiðar Jónsdóttur frá  þar sem hún sýnir m.a. stórar ætingar frá fyrstu árum sínum í grafík.  Sýningin opnar 17. nóvember nk. og er mikið tilhlökkunarefni.
 
Ragnheiður Jónsdóttir Æting -1975
Glundur

Ragnheiður Jónsdóttir--Æting-1975
Palli getur ekki verið einn í heiminum
Svo má ekki gleyma þeim sem halda merki grafíkur stöðugt á lofti, láta ekki deigan síga, vinna bara og gera og eru, okkur hinum stöðug hvatning og innblástur. En laugardaginn 17. nóvember opnar Ríkhard Valtingojer sýningu á nýjum Litógrafíum og Mezzotintum í sal Íslenskrar grafíkur. Það dugir ekkert minna en nýr póstur á þessu bloggi fyrir svona höfðingja til að koma því almennilega til skila. En látið þá sýningu ekki framhjá ykkur fara.

Thursday, November 8, 2012

Kupferstich Kabinett í Berlín

File:The Owl's Nest Bosch.jpg
Hieronymus Bosch(1450-1516). "Ugluhreiður" (uþb.1505-1515)Pennateikning með brúnu bleki
Ég fór fyrir stuttu í Gemäldegallery í Berlín. Þar eru stórkostlegustu verk vestrænnar listar samankomin. Tímans vegna komst ég ekki yfir nema lítið brot af því sem mig langaði að sjá. En þarna er líka svokallað: Kupferstich Kabinett Berlín . En eins og sjá má eru þar mörg helstu meistaraverk grafíklistar. Þar er líka hægt að panta tíma á bókasafninu og skoða teikningar og grafíkverk stóru meistaranna í návígi. Held að þetta hljóti að vera ótrúlegt og er ákveðin í að skoða þetta þegar ég fer til Berlínar í byrjun desember aftur. Þessi teikning er eftir Bosch er að visu ekki þar en mikið væri ég til í að skoða hana í návígi.