Wednesday, July 25, 2012

Prent og Keramik/Print and Ceramics

Ég er alveg dolfallin. Það byrjaði á því að ég hitti ungan norðmann sem er í námi í Listaháskólanum í Bergen og hann fór að segja mér af þessari bók sem er eftir Paul Scott sem kennir við skólann í Bergen og reyndar á fleiri stöðum og er mjög framarlega í rannsóknum á prenti og keramik. Sjálfur framsækinn listamaður og sýnir víða um heim. Mér finnst þetta alveg ótrúlega spennandi og heillandi blanda sem býður upp á brjálaða hluti. Langar að vita meira og meira. Svo verð ég að benda á þessa heimasíðu http://www.druckstelle.info sem er á Grafíkverkstæði í Berlín. Þar er verið að spá í þetta og þar er líka hægt að komast á spennandi grafíkkúrsa. Úllala!!
Verk eftir Paul Scott 

Bókin sem hann samdi sem ég ætla að útvega mér.

Verk eftir Caroline Slotte frá 2007 úr seríunni "Man on a boat"





Sunday, July 22, 2012

Winslow Homer

Winslow Homer var ákaflega flinkur málari. En það er frábært að skoða ætingarnar hans. Hann vann sem kortagerðamaður í hernum um tvítugt og ferðaðist á milli staða og skráði svæðið sem var útfært í ætingu. Hann hefur haft gríðarlega þjálfun í teikningu sem skilar sér í öllu sem hann gerði. Svo hefur hann mikinn sans fyrir blæbrigðum og þýðingu ljóss og skugga. Hann var líka meistari næturinnar og "Nocturnur" hans drungalegar og flottar. Hann teiknaði alltaf beint á plötuna og spáði ekki í speglunina. Held hann hljóti að hafa gert það í þessari litlu ætingu,  en mér finnst sjást á málverkinu hvað hann hefur verið þjálfaður í að ná dökkum og ljósum tónum.
Winslow Homer - Æting

Sumarnótt málverk - Winslow Homer

Monday, July 16, 2012

Lithotage - München 2012

Í lok ágúst fer ég til München á fyrstu Grafíkmessuna mína. Ég hef áður sótt allskyns listamessur, þar sem gallerí, listamenn og listunnendur koma saman sýna sig og sjá aðra. En þetta er í fyrsta sinn sem ég fer á "messu" af þessu tagi. Félagið Íslensk grafík ætlar að taka þátt í messunni og vera með bás og kynna félagið, verkstæðið, félagsmenn. Jafnframt munum við sem verðum á svæðinu leita allra leiða til að kynna okkur sjálf og tengja, enda verðum við þarna í tæpa viku og það verður sko ekki setið auðum höndum. Það er Steindruck München verkstæðið, sem stendur fyrir þessari messu sem er haldin á 5 ára fresti. Margar sýningar verða opnaðar í borginni, skoðunarferðir á verkstæði, söfn, gallerí verða í boði og meira að segja verður farið í steinaverksmiðjuna í Solnhofen þar sem eiginlegu Litógrafíusteinarnir koma frá. Dagskráin er eiginlega óbærilega spennandi og tilhlökkunarefni að sitja á kvöldin og taka stöðuna eftir viðburðarríka daga. Hér er linkur á messuna: www.lithotage.de. En svona verður huggulegt hjá okkur á kvöldin, þetta kalla þeir "relaxed get together in the courtyard":

Friday, July 13, 2012

Grafíkmappa - Idea of North


Nicole Pietrantoni - The Big melt - 2012

Soffía Sæmundsdóttir - True North - Æting - 2012
Eitt af því skemmtilega við grafík og að starfa með grafíkerum eru allar þessir mismunandi leiðir til að deila með öðrum. Fyrir það fyrsta er maður oft að vinna á verkstæði með öðrum, maður getur farið á verkstæði erlendis og hér heima og kynnst fólki, aðferðum og tækni sem annars væri ókunn. Grafík er oftast unnnin á pappír og er þar af leiðandi auðveld í flutningi, skemmtilegt að skipta á verkum með öðrum og svo er manni af og til boðið að taka þátt í " Grafíkmöppu" sem er mjög skemmtilegt fyrirbæri. Þá er einhver sem ákveður að fá einhverja með sér til að gera möppu. Stundum er eitthvað þema, en stundum eru bara ákveðnir listamenn fengnir saman sem eru td. á námskeiði saman eða að vinna á verkstæði eða eitthvað þess háttar. Mér bauðst að taka þátt í svona möppu í vetur og hún er nýkomin til landsins og er á sýningu niðri í Grafíkfélagi næstu vikurnar. Nicole sem var hér á Íslandi í eitt ár og er alveg frábær listamaður valdi listamenn í möppuna og við áttum að gera upplag, 18 eintök af myndinni, mátti vera með hvað aðferð sem við vildum og það fylgdi með ákveðinn texti sem innblástur. Maður borgar svo lítilræði fyrir sendingarkostnað og sameiginlegar pakkningar en það getur verið allavega og engin regla með það. Svona möppur geta orðið mjög verðmætar en það er líka bara svo gaman að fá svona gullfallegan pakka með frábærum listaverkum. Ég vona svo sannarlega að mér bjóðist að vera með í fleiri möppum í framtíðinni og kannski mun ég sjálf einhverntímann vera "sýningarstjóri" á einhverri slíkri. 

Lithotage in Stöðvarfjörður - júlí 2012

Steinþrykksdagar á Stöðvarfirði vikuna 4-10 júlí 2012 voru sannarlega árangursríkir. Að geta helgað sig því að vinna með steinþrykk, rifja upp aðferðina við að vinna á stein, hvernig á að pússa steinn, æta á hann, teikna, mála og þrykkja. Skoða bækur og myndir þar sem unnið er með steinþrykk, en líka bara að fylgjast með "meistaranum", Rikhard Valtingojer að störfum. Ekki spillti félagsskapurinn fyrir, notalegt andrúmsloft og vinskapur á alla bóga en líka friður til að vinna að sínu ótruflaður.

.....að sitja úti í sólinni og teikna á steininn
Fullt tungl á Stöðvarfirði.

Búið á teikna á steininn. Myndin Tindar/Súlur

Eins og alltaf finnst mér skipta máli hvernig maður nálgast þann miðil sem verið er að vinna með. Steinþrykk finnst mér vera aðferð sem er hæg og byggir á gömlum merg. Hún er rythmysk og innhverf. Það hvernig maður pússar steininn verður að athöfn með einkar fallegu hljóði sem er aldrei skerandi og mjög dáleiðandi. Það er mikilvægt að láta hendina aldrei snerta steininn því þá kemur fita á hann, og svo er mikilvægt að bleyta hann alltaf á milli með svampi og vatni. Steinninn tekur mjög vel við krítinni og blekinu því hann er gljúpur og mér fannst það aldrei trufla mig að þurfa að hugsa myndina öfugt. Ég reyndi að nota eins margar aðferðir við að teikna eins og ég get, ég bar td. á gummi arabicum fyrst(Það eru hvítu hringirnir)en með því er ég búin að ákveða að hafa eitthvað svæði alveg hvítt. Svo teiknaði ég með krít, málaði með bleki og eftir að búið var að "opna " steininn aftur þá gat ég teiknað inn í hvítu hringina fjallstindana og nuddað einhverjum skýjaflákum fyrir ofan þá með tusku. þegar þarna er komið við sögu er búið að æta steininn einu sinni, þá er liturinn þurrkaður út með terpentínu, asphalt borið á sem situr ofan á krítinni(fitunni) og svo er gummi arabicum sett á aftur og látið þorna þ.e. steininum er lokað þar til farið er að prenta hann. Ég er með heilmargar myndir og video af Rikka síðan á þessu námskeiði og ætla að setja það saman með skipulögðum hætti. En ég hef á tilfinningunni að ég eigi eftir að vinna mun meira með steinþrykk.