Friday, July 13, 2012

Lithotage in Stöðvarfjörður - júlí 2012

Steinþrykksdagar á Stöðvarfirði vikuna 4-10 júlí 2012 voru sannarlega árangursríkir. Að geta helgað sig því að vinna með steinþrykk, rifja upp aðferðina við að vinna á stein, hvernig á að pússa steinn, æta á hann, teikna, mála og þrykkja. Skoða bækur og myndir þar sem unnið er með steinþrykk, en líka bara að fylgjast með "meistaranum", Rikhard Valtingojer að störfum. Ekki spillti félagsskapurinn fyrir, notalegt andrúmsloft og vinskapur á alla bóga en líka friður til að vinna að sínu ótruflaður.

.....að sitja úti í sólinni og teikna á steininn
Fullt tungl á Stöðvarfirði.

Búið á teikna á steininn. Myndin Tindar/Súlur

Eins og alltaf finnst mér skipta máli hvernig maður nálgast þann miðil sem verið er að vinna með. Steinþrykk finnst mér vera aðferð sem er hæg og byggir á gömlum merg. Hún er rythmysk og innhverf. Það hvernig maður pússar steininn verður að athöfn með einkar fallegu hljóði sem er aldrei skerandi og mjög dáleiðandi. Það er mikilvægt að láta hendina aldrei snerta steininn því þá kemur fita á hann, og svo er mikilvægt að bleyta hann alltaf á milli með svampi og vatni. Steinninn tekur mjög vel við krítinni og blekinu því hann er gljúpur og mér fannst það aldrei trufla mig að þurfa að hugsa myndina öfugt. Ég reyndi að nota eins margar aðferðir við að teikna eins og ég get, ég bar td. á gummi arabicum fyrst(Það eru hvítu hringirnir)en með því er ég búin að ákveða að hafa eitthvað svæði alveg hvítt. Svo teiknaði ég með krít, málaði með bleki og eftir að búið var að "opna " steininn aftur þá gat ég teiknað inn í hvítu hringina fjallstindana og nuddað einhverjum skýjaflákum fyrir ofan þá með tusku. þegar þarna er komið við sögu er búið að æta steininn einu sinni, þá er liturinn þurrkaður út með terpentínu, asphalt borið á sem situr ofan á krítinni(fitunni) og svo er gummi arabicum sett á aftur og látið þorna þ.e. steininum er lokað þar til farið er að prenta hann. Ég er með heilmargar myndir og video af Rikka síðan á þessu námskeiði og ætla að setja það saman með skipulögðum hætti. En ég hef á tilfinningunni að ég eigi eftir að vinna mun meira með steinþrykk.

No comments:

Post a Comment