Í lok ágúst fer ég til München á fyrstu Grafíkmessuna mína. Ég hef áður sótt allskyns listamessur, þar sem gallerí, listamenn og listunnendur koma saman sýna sig og sjá aðra. En þetta er í fyrsta sinn sem ég fer á "messu" af þessu tagi. Félagið Íslensk grafík ætlar að taka þátt í messunni og vera með bás og kynna félagið, verkstæðið, félagsmenn. Jafnframt munum við sem verðum á svæðinu leita allra leiða til að kynna okkur sjálf og tengja, enda verðum við þarna í tæpa viku og það verður sko ekki setið auðum höndum. Það er Steindruck München verkstæðið, sem stendur fyrir þessari messu sem er haldin á 5 ára fresti. Margar sýningar verða opnaðar í borginni, skoðunarferðir á verkstæði, söfn, gallerí verða í boði og meira að segja verður farið í steinaverksmiðjuna í Solnhofen þar sem eiginlegu Litógrafíusteinarnir koma frá. Dagskráin er eiginlega óbærilega spennandi og tilhlökkunarefni að sitja á kvöldin og taka stöðuna eftir viðburðarríka daga. Hér er linkur á messuna: www.lithotage.de. En svona verður huggulegt hjá okkur á kvöldin, þetta kalla þeir "relaxed get together in the courtyard":

No comments:
Post a Comment