Ég er alveg dolfallin. Það byrjaði á því að ég hitti ungan norðmann sem er í námi í Listaháskólanum í Bergen og hann fór að segja mér af þessari bók sem er eftir Paul Scott sem kennir við skólann í Bergen og reyndar á fleiri stöðum og er mjög framarlega í rannsóknum á prenti og keramik. Sjálfur framsækinn listamaður og sýnir víða um heim. Mér finnst þetta alveg ótrúlega spennandi og heillandi blanda sem býður upp á brjálaða hluti. Langar að vita meira og meira. Svo verð ég að benda á þessa heimasíðu
http://www.druckstelle.info sem er á Grafíkverkstæði í Berlín. Þar er verið að spá í þetta og þar er líka hægt að komast á spennandi grafíkkúrsa. Úllala!!
 |
| Verk eftir Paul Scott |
 |
| Bókin sem hann samdi sem ég ætla að útvega mér. |
 |
Verk eftir Caroline Slotte frá 2007 úr seríunni "Man on a boat"
|
No comments:
Post a Comment