Saturday, April 13, 2013

Að segja eitthvað....


Alþekkt er að nýta sér fjölföldun til að koma ákveðnum skilaboðum á framfæri. Það er einmitt með slíkum hætti að grafík nær útbreiðslu og listamenn fara að nýta sér tæknina til að framleiða myndir með boðskap í stórum stíl og koma út til fólks. Mér dettur þetta svona í hug núna í aðdraganda kosninga þegar auglýsingastofum sjá næstum alfarið um að koma boðskapnum frá framboðum út í samfélagið. Þá má ekki undanskilja frábæra skopmyndateiknara á blöðunum með Halldór Baldursson í fararbroddi(sem útskrifaðist úr grafíkdeild MHÍ 1991 að ég held). Það gerist eitthvað skemmtilegt þegar túlkun listamannsins á líðandi stundu kemur fram. Samsetning myndarinnar og tímasetning skiptir auðvitað miklu í þessu.
Sjálfsmynd William Hogarth
Listmálarinn og bretinn William Hogarth  1697-1764 var ákveðinn brautryðjandi í þessum efnum og hafði mikil áhrif á þróun skopmyndagerðar með málverkum og  grafíkmyndum sínum sem öðluðust mikla útbreiðslu. Hann hafði ferska sýn á viðfangsefni sitt og myndbygging, karaktersköpun, húmor og boðskapur héldust í hendur. Það væri áhugavert að fá sýn myndlistarmanna á kosningabaráttuna núna, og hægt að styðjast við ýmislegt sem Hogarth lagði til málanna.
Æting William Hogarth.
Á þessari mynd sést hvað hann bjó yfir frábærri tækni 

Æting William Hogart - Karakterar/Skopmyndir

Wednesday, April 10, 2013

Næstved - Sýning í maí

Það eru alltaf góð tengsl milli félaga okkar a Norðurlöndunum og alltaf eitthvað framundan í þeim efnum. Grafíkverkstæðið í Næstved í Danmörku rekur sýningarsal eins og við í félaginu Íslensk grafík. Nú hafa þeir boðið okkur að sýna í maí nk. og á annan tug sýnenda úr félaginu sýna nýja grafík í stærðinni 40x50 sem unnin var sérstaklega af þessu tilefni. Í september mun félagið ÍG taka á móti sýningu frá dönunum og verður gaman að sjá verkin sem rata hingað á Íslands strendur. Hér er hlekkur á sýningu félagsmanna en það er ástæða til að hvetja fólk til að gera sér ferð til Næstved, örugglega skemmtilegt.  http://grafisk-kunst.org/grafisk-galleri/galleri-islandsk-slideshow.htm