Alþekkt er að nýta sér fjölföldun til að koma ákveðnum skilaboðum á framfæri. Það er einmitt með slíkum hætti að grafík nær útbreiðslu og listamenn fara að nýta sér tæknina til að framleiða myndir með boðskap í stórum stíl og koma út til fólks. Mér dettur þetta svona í hug núna í aðdraganda kosninga þegar auglýsingastofum sjá næstum alfarið um að koma boðskapnum frá framboðum út í samfélagið. Þá má ekki undanskilja frábæra skopmyndateiknara á blöðunum með Halldór Baldursson í fararbroddi(sem útskrifaðist úr grafíkdeild MHÍ 1991 að ég held). Það gerist eitthvað skemmtilegt þegar túlkun listamannsins á líðandi stundu kemur fram. Samsetning myndarinnar og tímasetning skiptir auðvitað miklu í þessu.
![]() |
| Sjálfsmynd William Hogarth |
Listmálarinn og bretinn William Hogarth 1697-1764 var ákveðinn brautryðjandi í þessum efnum og hafði mikil áhrif á þróun skopmyndagerðar með málverkum og grafíkmyndum sínum sem öðluðust mikla útbreiðslu. Hann hafði ferska sýn á viðfangsefni sitt og myndbygging, karaktersköpun, húmor og boðskapur héldust í hendur. Það væri áhugavert að fá sýn myndlistarmanna á kosningabaráttuna núna, og hægt að styðjast við ýmislegt sem Hogarth lagði til málanna.
![]() |
| Æting William Hogarth. Á þessari mynd sést hvað hann bjó yfir frábærri tækni |
![]() |
| Æting William Hogart - Karakterar/Skopmyndir |



No comments:
Post a Comment