![]() |
| Guten tag Deutschland |
Í næstu viku verð ég í München á Lithotage II 2012 eins og áður hefur komið fram. Grafíkfélagið verður með bás á grafíkmessunni 1. og 2. september og ætlar þar að kynna og sýna íslenska grafík og verkstæði félagsins en það eru engir aukvisar sem verða þarna með okkur eins og sjá má á þessum lista:
Sept. 1st – 2nd, 2012
LITHO +
Curvaluxa, (GER); .Edinburgh Printmakers (UK); .Faßlrinner, Stiegeler, Grigorjewa (GER); .Thomas Franke, Steinwerk (GER); .Graphisches Atelier Leipzig (GER); .Icelandic Printmaking Association (ISL);.Kulturmodell Bräugasse Passau (GER); .Marita Kusch, Luminita Mihailicenco, Manfred Hollmann, Karl Imhof (GER);museograbado, (MEX);.Nederlands Steendrukmuseum (NL); .Paul Bernhard, Heß Christian, Pohl Peter (GER);.Planparallel (GER);.Rehm Christof (GER); .Römertum Feinstpapier (GER);.Royal Academy of Fine Arts, Antwerp (BE); .show your print, Milano (IT);.Stangl Reinhard, Berlin(GER); .Steendrukkerij Obelisk, Wim Jonkman (NL); .Tschesno Steffen, Berlin (GER);Universität der Künste Berlin (GER);Bolaget Vardagsbilder (SE);
Grafikwerkstatt Dresden (Ger)Neuhauser Kunstmühle (AUS).
Það er Steindruck München sem skipuleggur þennan viðburð sem haldinn er á 5 ára fresti og er virðulegt verkstæði sem heldur þessari aðferð(steinþrykk)sérstaklega á lofti og er virðuleg stofnun eins og sjá má:
![]() |
| Virðuleg stofnun eins og sjá má |
Ég er að með ákveðið verkefni í huga fyrir sjálfa mig sem ég vonast eftir að geta þokað áfram en auðvitað ganga svona messur út á að sýna sig, sjá aðra, skoða það sem efst er á baugi í þessu fagi, skoða fjölmörg verkstæði og sjá fagfólk að störfum. Ótal sýningar opna þessa viku og auðvitað verður borgin tekin út og helstu söfnin ef tími vinnst til.





