Sunday, August 12, 2012

Hægri hönd Goltziusar

Listamaður: Goltzius - 1588. Penni og brúnt blek á pappír

Þessi teikning er mjög fræg og er af hægri hönd Goltziusar sem var hollenskur listamaður og var uppi á 16. öld. Hann var mjög þekktur og flinkur listamaður en varð fyrir því óláni á fyrsta ári að brenna á sér hægri hendina á kolum og alla tíð síðan gat hann ekki opnað lófann alveg. Það stóð þó ekki í veginum fyrir fullkomnun hans sem teiknara og kannski hefur hann einmitt lagt sig enn meira fram þess vegna. En þessi teikning er alger snilld og það má skoða fleiri myndir eftir hann og fleiri meistara á þessum hlekk

No comments:

Post a Comment