Wednesday, August 8, 2012

Grafíksýningin Philagraphika 2010

Það er stundum gaman að skoða eitthvað skemmtilegt og láta sig dreyma stóra drauma. Mig dreymir um að vinna í stærðum í grafík(og fleiri miðlum reyndar). Fylla herbergi eða sali, ráða til mín aðstoðarmenn og þrykkjara sem hjálpa mér að hrinda hugmyndum mínun í framkvæmd. Þá er gott að skoða svona sýningar, þær fylla hugann af einhverju stórkostlegu eins og á þessari sýningu: Philagraphika 2010 , Þetta hefði ég viljað sjá.

Vonandi sé ég líka verk eftir þessa stórfenglegu listakonu einhverntímann. Hér er video um verk hennar: Regina Silveira Mundus Admirabilis Hún er frá Brasilíu og er fædd 1939. Verk hennar, silkiþrykk á postulín og útsaumur í efni. eru áleitin þrátt fyrir fegurðina í þeim gefa þau til kynna ofbeldi, spillingu og kvikyndi sem hafa tekið yfir líf okkar og sálu.
Regina Silveira Mundus -  Admirabilis, 2010 

No comments:

Post a Comment