Friday, September 14, 2012

Grafík í Tate Gallery

Hef verið að skoða Tate Modern m.a. hvað er til af grafíkverkum og hvaða listamenn hafa notað grafík í  sinni list. Hér má til dæmis sjá Viðtal við Peter Doig á sýningunni hans í Tate 2008. Það er áhugavert að skoða málverkin hans og hvernig hann notar td. ljósmyndir og gerir ætingar sem hann útfærir í málverk.
Peter Doig - Æting úr 10 mynda seríu

Echo lake málverk eftir Peter Doig frá svipuðum tíma(1998)
Ég er ekki í nokkrum vafa um að Peter Doig hefur skoðað James Whistler og orðið fyrir áhrifum af litanotkun hans og tækni. Whistler var mjög flinkur grafíker og hreifst vafalaust af þessum dökku tónum sem gjarnan eru í grafíkinni, en á Tate eru þessi málverk eftir hann.

J. Whistler



James Whistler (1875)

Svo leyndist þessi dásamleg æting eftir Henry Moore frá 1979 þegar hann var á níræðisaldri því hann var fæddur fyrir aldamót.
Henry Moore æting á pappír (1979)


No comments:

Post a Comment