Sunday, September 9, 2012

Íslensk grafík í München

Dagana 28. ágúst til 3 september voru Lithotage II 2012 í München. Hópur áhugasamra grafíkera/listamanna, þar á meðal undirrituð lögðu land undir fót og kynntu sér það sem var í boði, skoðunarferðir, sýningar, fyrirlestrar, "networking", verkstæðisheimsóknir og ýmsar nýjungar í grafík voru kynntar. Á grafíkmessu sem stóð yfir 1. og 2. september settum við upp kynningarbás með verkum eftir félagsmenn ÍG og útdeildum bæklingum og upplýsingum til áhugasamra. Gróskan í grafíkinni er mikil og greinileg hreyfing fyrir því að stilla saman strengina og nú er bara að setja næstu Lithotage á dagskrá svo sem í Dresden 2013 og Tidaholmen í Svíþjóð 2014.

Dagur 1 - Lithotage II 2012 . Fulltrúar ÍG mæta á svæðið; Elísabet, Þórdís, Magdalena, Valgerður B. og Soffía sem tók myndina. Valgerður Hauksdóttir slóst í hópinn þegar leið á daginn.

Skoðuðum dásamlega fallega kirkju.

SOLNHOFEN 

Heill dagur fór í að skoða steinanámurnar i Solnhofen. Það var mikil upplifun. Dagskráin var mjög stíf, löng keyrsla, verksmiðjan, námurnar og safnið skoðað og endað í steikjandi hita við að hamra upp steina með hamri og meitli. Það er gaman að lesa hér á ensku um Solnhofen en í gömlum sjávarbotni frá því þetta svæði var þakið sjó(fyrir 110-160 milljónum ára) finnast þessir sérstöku steinar sem Lithografíur eru unnar á en einnig merkilegir steingervingar.
Steinanámurnar í Solnhofen - Dagsferð þangað frá München
Í verksmiðjunni voru steinar í bunkum.
 Mismunandi litir, númeraðir. Saga þeirra hulin.
Gamlir steinar komnir heim. Búið að prenta af þeim og nú bíða 
þeir þess að vera slípaðir niður og leita svo nýrra eiganda.
Steinarnir engin smásmíði
Óhemju fallegir litir og saga.
Gráir tónar

Margar sýningaropnanir voru á hverjum degi og eins gott að halda vel á spöðunum til að missa ekki af neinu. Við áttum einn fulltrúa á sýningunni "Maps and Flags" en Magdalena Margrét var með flottar litógrafíur sem hún vann sérstaklega fyrir þessa sýningu sem haldin var í húsnæði "Landmælinga Ríkisins". 


GRAFÍKMESSA 1. OG 2. SEPTEMBER
Básarnir voru mjög mismunandi

Uppsetning á básnum okkar. Við unnum allar saman að því.
Negla, mæla, velja stað. 14 fermetrar undir....
....halda....
Allt að koma
Já já
Séð ofan frá....vel sóttur bás og margir sem spurðu og skoðuðu
Básarnir voru mjög mismunandi. Þessi er frá Grafikwerkstatt Dreden.
Þessi listamaður er frá Milano og var með þetta frábæra verk sem er 
þrykkt á lín(fyrir framan)og  sér meðhöndlaðan pappír(á bakvið). 
Hana langar að koma til Íslands
Á þessum bás var unnið að verki á álplötu allan tímann.


Þessi frábæri maður með axlaböndin er frá Sviss og er einn sá allra færasti í steinþrykki. Hann þrykkti m.a. fyrir Paul Wunderlich alveg frábærar myndir sem voru þarna á sýningu.  Hann er nú sestur í helgan stein(þannig lagað) og málar nú sjálfur alveg frábær málverk af þéttum konum sér til ánægju og yndisauka.

SEMINAR
Samhliða Grafíkmessunni voru haldnir ýmsir mjög áhugaverðir fyrirlestrar í hliðarsal. Ég náði ekki að hlusta á þá alla því við skiptumst á að sitja yfir á bás félagsins og stundum var ekki tími né orka. En þessi fyrirlestur var td.mjög áhugaverður og ég hef trú á að maður eigi eftir að hitta þennan listamann víðar í tengslum við grafík.
Þessi kona Nina Bondeson var með mjög skemmtilegan fyrirlestur um ENDEGRA sem eru einskonar grasrótarsamtök um þróun og menntun í grafík. Hún sagðist, í upphafi fyrirlesturs síns,  hafa tekið þann pól í hæðina fljótlega að vera aldrei með fyrirlestur neins staðar án þess að sýna verk og segja frá sjálfri sér í leiðinni. Hún er mjög skemmtilegur og frjór listamaður og vinnur jöfnum höndum í grafík, innsetningar, teikningar og fleiri miðla. Hún hefur líka mjög ákveðnar skoðanir á listaheiminum og það var hressandi að hlusta á hana og heyra hennar sýn.

No comments:

Post a Comment