Næsta vika verður venju fremur annasöm í grafíktilliti. Tvær grafíksýningar í uppsiglingu sem ég tek þátt í, 45 ára afmæli Félagsins Íslensk grafík verður fagnað á Menningarnótt í Artótekinu og er opnun klukkan 18.
En á mánudaginn þ.e. 18.-24 ágúst næstkomandi tökum við á móti 18 grafíkerum frá Boston sem ætla að vera hér, vinna á verkstæðinu og skoða landið.Á Menningarnótt verður þessi góði hópur að störfum á grafíkverkstæðinu ásamt félögum ÍG og sýna m.a. ýmsar aðferðir í grafík svo sem:
Bob Tomolillo: Lithography.
Nancy Diessner :Pronto plate techniques.
Christianne Corcelle: Carborundum intaglio process.
Judy Hochberg: Toyoba plate process.Einhverjir félagsmenn ÍG munu líka kynna eitthvð skemmtilegt, amk. mun Viktor kynna rafætingar sem er skemmtileg og einföld aðferð og umhverfisvæn!!
Svo láttu sjá þig hér á Menningarnótt:
Tryggvagata 17 - Íslensk grafík verkstæði
![]() |
| Prufa af nýrri plötu í nýrri pressu. Sérstakur litur. |

No comments:
Post a Comment