New York býður upp á allar tegundir lista og er grafíkin þar ekki undanskilin. Alþjóðlega grafíksetrið eða International Print Centre er í einu aðal gallerí hverfi borgarinnar og þar eru jafnan sýningar, og oft ýmsar samkeppnir sem hægt er að taka þátt í. Staðsetningin er á 5 hæð og ekki beint aðlaðandi að koma þar að, en salurinn þar miðlungsstór, með hátt til lofts. Þar sá ég ýmis verk eftir marga þekkta listamenn, ekki endilega grafíklistamenn og var ég ekkert sérstaklega "imponeruð". Hinsvegar vakti athygli mína örlítið fræðslusetur í smá rými inn af salnum. Þar mátti sjá tól og tæki, litla pressu, myndir, bækur um grafíklistamen, plötur ofl. ásamt fræðslumyndbandi. Áhugavert og einfalt að útfæra.



No comments:
Post a Comment